Um Magdalenu SirrýMagdalena Sirrý er fædd og uppalin í Hafnarfirði og byrjaði snemma að hanna og sauma sín eigin föt. Árið 1979 hlaut hún kennararéttindi frá Kennaraskóla Íslands sem textílkennari. Síðan þá hefur hún kennt textilmennt og tengdar greinar víða, svo sem í Hússtjórnarskólanum á Varmalandi, Víðsstaðaskóla, Grunnskólunum í Bolungarvík og á Ísafirði, Holtaskóla og Myllubakkaskóla í Keflavík og Fjölbrautarskóla Suðurnesja. Að auki hefur hún haldið fjölda námskeiða á eigin vegum og annarra, m.a. á vegum Kvenfélaganna á Ísafirði og á Bolungarvík, í textílmenntum, saumaskap, prjónaskap, auk námskeiða í pappírs og kortagerð, bútasaumi o.fl.
Árið 1999 lauk Magdalena lokaprófi af hönnunarbraut Iðnskólans í Hafnarfirði og lokaprófi af útstillingabraut sama skóla árið 2002. Magdalena tók einnig þátt í Brautargengi hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, sem hún lauk árið 2002. Magdalena hefur tekið þátt í fjölda sýninga t.d. á vegum Handverks og hönnunar, í Norræna húsinu og á Ljósanótt, auk einkasýninga. Magdalena hefur að auki sótt fjölda námskeiða hjá aðilum svo sem Heimilisiðnaðarskólanum, Textílkennarafélagi Íslands, Iðnskólanum í Reykjavík, Myndlista- og handíðaskólanum, Listaháskóla Íslands, Tómstundaskólanum, endurmenntun Kennaraháskóla Íslands o.fl. Magdalena sótti námskeið í endurnýtingu fatnaðar hjá Textílkennarafélagi Íslands, grunnámskeiðið Lesið í skóginn og tálgað í tré hjá Garðyrkjuskóla Ríkisins og námskeið í silkiþrykki hjá Soffíu Margréti Magnúsdóttur. Meðal þess sem hún hefur numið og lagt stund á auk textílhönnunar, útstillingahönnunar og almennrar hönnunar er:
Verk Magdalenu eru til sýnis og sölu í Gallerý 8 við Hafnargötu í Reykjanesbæ, en einnig er velkomið að hafa samband við listakonuna sjálfa í síma 896 1994 eða tölvupóst magdalena@magdalenasirry.is.
|
About Magdalena SirryBorn and raised in the Icelandic town of Hafnarfjörður, Magdalena started designing and making her own clothes at very early age. In 1979 she graduated from the Textile department of the Icelandic College of Education. Since then she has taught textile design and related disciplines at various schools in Iceland as well as teaching numerous independent courses in textile, sewing, knitting, paper making, greeting card making, quilting and more.
In 1999 Magdalena Graduated as a designer from Hafnarfjörður Trade College and as a Display Designer from the same school in 2002. In addition to this she completed the Brautargengi business course at Innovation Center Iceland in 2002. Magdalena has taken part in numerous exhibitions, both privately and with others, and with organisations such as Crafts and Design and at Nordic House. Constantly working on her craft, Magdalena has also attended numerous independent courses in textile, design and art related disciplines, such as upcycling, woodwork, silk printing, felting, book making and more and more. Magdalena's works are exhibited and sold at Gallery 8, Hafnargötu 21, Reykjanesbæ, but you can also contact the artist directly: Tel: + 354 896 1994 Email: magdalena@magdalenasirry.is |